Vínsmökkun
17. ágúst 2008
Fyrirbæri nefnist Vínkeðjan. Slíku apparati heldur VÍN OG MATUR gangandi. Helga Þórey klukkaði mig. Verkefni mitt var að smakka og rýna rauðvínið Anima Umbra frá hinu kunna Úmbríu héraði á Ítlaíu.
Til aðstoðar við smökkunina voru hinir síkátu meðlimir matarklúbbsins Óðins. ÓlafurRagnarLárusHrafnhildurHildurÍris. Við smökkunina var vísindalegum vinnubrögðum að sjálfsögðu haldið til haga. Hver rýnir skráði athugasemdir á þartilgert blað og gaf stjörnur á skalanum 1 til 5. Að því loknu fóru fram pallborðsumræður. Eftirfarandi eru ummæli rýnanna 7, ásamt stjörnugjöf, óritskoðuð:
Rýnir #1: Létt fylling, lítið strokleður, smá skósóli. ***
Rýnir #2: Ávaxtabragð, sýrumikið, rennur ljúflega niður, ekki þungt eða höfugt, fer eflaust vel með léttari mat (kjöt) s.s. hamborgurum eða pasta, hentar síður með steikum. Niðurstaða: Hentar síður til drykkju eitt og sér. **,5
Rýnir #3: Edikkennd sýrulykt en þó afar milt. mjög tannískt, töluvert eftirbragð. Þungt, en gæti um leið hentað til magndrykkju. ***
Rýnir #4: Hef smakkað verra rauðvín **
Rýnir #5: Mikill skógur og náttúra, þurrt en milt. Hallormsstaður, lítil fylling. Eitt glas er nóg fyrir leikmanninn. Fyrsti sopinn góður en verður verra og verra. **
Rýnir #6: Viðarkennt í byrjun - Eik! Tannískt, mest í efri gómi, mjúkt í kok. Fer örugglega vel með mat, t.d. rjómapasta eða hvítmygluostum. Berjalyng! Virkilega gott vín, siðmenning. Niðurstaða: ****, Vægi: Hefur jákvæð áhrif.
Rýnir #7: Anima Umbra er líkt og önnur vín Montefalco hérðasins í senn ágengt og leikandi. Vínið er fagurrautt með tæpri meðalfyllingu. Sterk angan af krækiberjalyngi og rauðpipar. Harla sýrurýkt og tannískt vín. Skortir ævintæyrablæ í einfaldleika sínum. **,5
Lítum stutt á tölfræðina yfir stjörnur.
Meðtaltal: 2,7
Staðalfrávik: 0,7
Miðgildi: 2,5
Tíðasta gildi: 3
Ljóst er að vínið hefði vafalaust getað komið betur í gegnum þessa rýni. Á hitt ber þó að líta að ítarlegar ályktanir er varla hægt að draga þar sem samanburð skortir. Matarklúbburinn Óðinn hefur aldrei áður rýnt vín og þannig enginn leið að vita hvert normið er.
Niðurstaða: Áfram Vínkeðja, áfram UMBRIA, áfram vín og matur, áfram rauðvín, áfram vínsmökkun.
Ég skora á fjöllistamanninn Önund Pál Ragnarsson að halda keðjunni gangandi.
Reit
Trausti Þorgeirsson
at
8/17/2008 10:19:00 PM
Flokkar: Matur og drykkir, Menning
1 comments:
Arnar
sagði...
3:36 PM, ágúst 18, 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

Takk fyrir þetta rýnar #1 til #7. Skemmtileg umfjöllun, fær 4.5 stjörnu.