Morgunblaðið endurtekur fréttir

11. nóvember 2009

Á laugardaginn birti mbl.is þessa frétt, þar sem fjallað er um "grófustu fótboltakonu í heimi"?



Í gær birtist aftur svipuð frétt undir VERÖLD/FÓLK. Heimild. Við nánari skoðun er fréttin um sama myndbandið. Nú er fyrirsögnin "glíma eða fótbolti?".


Ég hef tekið saman leiðbeiningar um fréttamennsku á 21.öldinni:

1. Náungi úti í bæ tekur saman myndband og setur á jútúb.
2. Mimsunandi fréttamenn vinsælla vefmiðla finna myndbandið, og fjalla um.
3. Goto 2.


Ælti Óli Tynes sé búinn að fjalla um þetta stórmál?

Reit Trausti Þorgeirsson at 11/11/2009 08:00:00 AM 0 comments

Innheimtuviðvörun og viðskiptahættir Vódafóns.

5. nóvember 2009

Ég er vanur að borga reikningana mína sem næst eindaga. Á mánudaginn var slíkur dagur á tveimur reikningum frá VODAFONE, fyrir farsíma og internet. Því miður var ég út úr heiminum af völdum nóróveiru slíkan dag og hafði ekki rænu á að borga reikninga.



Ég mundi svo ekki eftir þessu fyrr en í dag og sá þá að VODAFONE hafði verið svo hugulsamt að skella 2*590 kr. INNHEIMTUVIÐVÖRUNnar-gjaldi ofan á reikningana. Ég hringdi og spurði hvað þetta þýddi. Stúlkan sem svaraði sagði efnislega að þetta væri kostnaður við að senda hatursfullt hótunarbréf heim til mín. Ég sagðist ekkert slíkt hafa fengið, en hún bað mig að athuga að pósturinn á Íslandi væri ekki sá hraðasti í heimi.


Fyrir utan þetta borgaði ég e-a tíkalla í dráttarvexti, sem mér finnst allt í lagi. En mér finnst fáránlegt að hafa staðið í skilvísum viðskiptum við fyrirtæki í 10 ár og eiga svo að borga 1180 kr. fyrir e-ð hótunarbréf.


Stúlkunni fannst lítið til koma, það eina sem hún bauðst til að gera var að sameina reikningana tvo, þannig að framvegis þarf ég bara að borga einu sinni 590kr. í INNHEIMTUVIÐVÖRUN...


Ætli þetta hafi e-ð með þetta að gera?

Reit Trausti Þorgeirsson at 11/05/2009 05:14:00 PM 3 comments

Kvikmyndir og tungumál.

23. október 2009

Í gærkvöldi fórum við Hildur á nýjustu kvikmynd Almodóvars, Los abrazos rotos. Ég er ekki mæltur á spænsku en á ensku heitir kvikmyndin Broken Embraces. Þetta býr til afar óþægilega klemmu þegar miði er keyptur í miðasölunni. Skynsamlegast er að biðja um miða á frummálinu. Ég tala hins vegar ekki spænsku og veigra mér við að segja "loð abraðóð rótóð". Hinn möguleikinn er að segja enska nafnið. Það er hins vegar kjánalegt, enska kemur málinu ekkert við. Kvikmyndin er á spænsku með íslenskum texta.


Síðasti möguleikinn er að biðja um miða á íslensku, en þá þarf ég að þýða titilinn úr ensku. Hvernig á ég að vita að enski titillinn sé nákvæmur en ekki e-ð staðfært grín. sbr. að önnur hver gamanmynd í Ríkissjónvarpinu heitir "Handagangur í öskjunni" á íslensku.

Aðrir valmöguleikar eru að biðja um miða á "Penelópí myndina" eða "Almodóvar myndina". Eða það sem ég gerði á endanum: "tvo miða í sal eitt takk". Ég lít samt á það sem uppgjöf.

Ég hef ekki verið eins stressaður í miðasölu síðan ég var 13 ára og fór á Phenomenon.


Myndin var annars mjög fín. Meðmæli. Vægi: Mikið.

Reit Trausti Þorgeirsson at 10/23/2009 02:03:00 PM 1 comments

Vísir.is þarf að átta sig á stöðunni

22. október 2009

Ég reyni eftir fremsta megni að forðast vefsíðuna visir.is. Önnur ástæðan er sú að þarna inni eru meira en 50% erlendu fréttanna skelflegar "brandara"-fréttir í boði Óla Tynes. Skoðum 3 dæmi frá í gær:


Bangsi bílaþjófur gripinn glóðvolgur
Þannig fara hjónabönd í hundana
Vill gefa fallegum konum afslátt


-Hvílíkar stórfréttir!

Hin ástæðan er auðvitað slúðrið hennar Ellýjar (í dag: Óförðuð Jolie - myndir, hvílík skelfing!)


Afdrifarík mistök voru hins vegar að smella á þessa frétt
Meintar geimverur hlupu um akur í Wiltshire.
Myndatextinn segir: "Hringir eða tákn sem birtust á akri í Silbury Hill í maí eru meðal þúsunda slíkra sem birst hafa víða um heim og ekki hefur tekist að útskýra. Margir telja um gabb að ræða en stærð sumra táknanna hefur skákað þeirri kenningu"


-Þar höfum við það. Þeirri "kenningu" að um gabb sé að ræða hefur verið skákað. Case closed.

Reit Trausti Þorgeirsson at 10/22/2009 02:23:00 PM 2 comments

Kastljósið þarf að átta sig á stöðunni

Lítum á nokkrar múnderingar Þórhalls Gunnarssonar í október:


Hinn ágæti sjónvarpsmaður Þórhallur gerir tvö afdrifarík mistök. Í fyrsta lagi klæðist hann ekki bindi. Það dregur afar mikið úr trúverðugleika ritstjórans og trausti áhorfenda. Aðrir umsjónarmenn slíks þáttar gera þetta ekki heldur.


Hin mistökin er að hneppa ekki jakkanum. Lítum á það sem hinn frábæri bloggari Simon Crompton segir um málið á vefsíðu sinni:

The whole structure of the jacket is built off this button and the shape of the shoulders. The lapels curl down to this button; the line of the suit from armhole to skirt is determined by the placement of this button. It is the fulcrum around which everything else revolves.

This is why men are always told to do up their suit jackets when standing. If they don’t, they might as well not wear a jacket that fits. All the tailoring is built off the shape created when the button is fastened.



Ég á ekki von á að öðru en að Þórhallur taki þetta til greina í næsta þætti. Hann var í gráa jakkanum síðast, hlýtur að vera í þeim svarta næst. Spennan liggur aðallega í því hvort hann verði í gráa eða svarta vestinu (peysu?) undir. Ég iða í skinninu.

Reit Trausti Þorgeirsson at 10/22/2009 08:13:00 AM 2 comments

Á bókasafninu

20. október 2009

Í lok sumars uppgötvaði ég Borgarbókasafnið aftur eftir langt hlé og hef stundað dálítið regulega síðan. Ég kann yfirleitt vel við mig í bókabúðum og mér líkar vel við bókasöfn svona í prinsippinu. Að finna hluti þar getur hins vegar gert mann sturla(ðan) böðvarson.



Í dag fór ég með það markmið að ná mér í bókina The Yiddish policemen's union eftir Michael Chabon. Leit á Gegnir.is benti til þess að hún væri til á Aðalsafninu. "Staðsetning: 830 Cha Yid." Hvað getur verið svona flókið?


Ég veit ekki nógu mikið, en 830 virðist vera almennur flokkur fyrir allar heimsins bækur á ensku. Þeim er því raðað á a.m.k. 4 mismunandi vegu í stafrófsröð eftir eftirnafni höfundar.
Ég byrjaði á að leita í scifi/fantasy hillunum. Ekki þar.
Næst scifi/fantasy hillunum fyrir börn (Já þetta er gert svona). Ekki þar.
Næst í spennusagna hillunum. Ekki þar.
Næst í e-u sem virðist vera óskilgreindur afgangur án þess að það sé útskýrt neitt frekar: Já! Hún var þar.


Ekki nóg með að maður þurfi að leita á 4 mismunandi stöðum án þess að neitt leiðbeini manni þá er ekki auðveldast í heimi að átta sig á því hvar einn flokkurinn byrjar og hinn endar. Auk þess er stafrófsröðin á milli rekka oft óskiljanleg.


Hinn möguleikinn hefði verið að leita aðstoðar bókavarðar. Það er aðeins fyrir lengra komna. Meira um það síðar.


Niðurstaða: Ég fékk bókina sem ég var að leita að. Hættu þessu væli.

Reit Trausti Þorgeirsson at 10/20/2009 08:17:00 AM 4 comments

Egill Helgason reynir á heila ritstjórnar og útgefanda AMX

15. október 2009

Fáir virðast valda ritstjórn og útgefanda AMX meira hugarangri en Egill Helgason. Má halda því fram að Egill hafi lagst á sinnið á þeim. Varla er hægt að opna vef Amx öðruvísi en þar sé fjallað um Egil og Silfur Egils.



trausti.blogspot.com hefur aldrei skilið þá miklu heift sem útgefandi AMX sýnir Agli Helgasyni eða það mikla hatur sem ritstjórar ber til kollega sinna á Silfri Egils. En eins og sagt er, það er þeirra vandamál.


trausti.blogspot.com gerði litla úttekt á skrifum Fuglahvísls AMX frá stofnun vefritsins til að kanna hversu oft hefur verið fjallað um Egil. Ekki er um vísindalega úttekt að ræða og margt hefur örugglega farið framhjá trausta.blogspot.com við þessa athugun. En eftir smá yfirlegu komst trausti.blogspot.com að því að Fuglahvísl skipta tugum á þessum mánuðum. Yfir 100 fuglahvísl- hvorki meira né minna. Ótrúlegt og þá skal hafa í huga að ekki er allt talið.


En trausti.blogspot.com taldi rétt að birta stutt ágrip af því efni sem þeir tóku saman:

Egill Helgason með æluna upp í kok

Egill Helgason í stjórnmál?

Egill Helgason: Tvö stefnumál Samfylkingarinnar

Egill Helgason móðgaður – niður með Dominique Strauss Kahn

Egill Helgason með Guðlaugi Þór?

Egill Helgason hyggur á landflótta

Egill, Þráinn og Ástþór í sama þátt

Egill í uppnámi

Egill blindaður af ESB afhendir röngum flokki pálmann

Egill vill ekki íslenskan landbúnað


Þýtt og staðfært héðan.

Reit Trausti Þorgeirsson at 10/15/2009 10:55:00 AM 1 comments

Órökrétt hegðun

14. október 2009

Þegar ég var að læra að keyra bíl á síðustu öld sagði ökukennarinn minn mér, (á einum af þeim fáu augnablikum sem hann var ekki að tala í farsímann), að "það kostaði um það bil einn kaffibolla af bensíni að ræsa hreyfilinn". Ég hef aðeins brotið heilann um það af hverju kaffibolli væri hentug mælieining í þessu samhengi, en í praxís þýddi þetta að væri ætlunin að stöðva bílinn í minna en svona 2 mínútur, borgaði sig ekki að drepa á vélinni.



Þessi vitneskja hefur haft þær afleiðingar að mér finnst mjög sárt að slökkva á vélinni og kveikja aftur áður en tvær mínútur hafa liðið. Hvílík sóun. Órökrétta hegðunin felst í því að við slíkar aðstæður, bíð ég stundum þangað til tvær mínútur hafa liðið með að kveikja aftur á vélinni. Yfirleitt geri ég ekkert uppbyggilegra á meðan en að stara á klukkuna í bílnum. Þannig laga ég alheimsjafnvægið.


Ég var með annað dæmi í huga um tilsvarandi órökrétta hegðun mína þegar ég byrjaði á þessari færslu. Ekki lengur.

Reit Trausti Þorgeirsson at 10/14/2009 08:07:00 AM 1 comments